‏ 1 Chronicles 12

1Þessir eru þeir, er komu til Davíðs í Siklag, er hann var landflótta fyrir Sál Kíssyni. Voru og þeir meðal kappanna, er veittu honum vígsgengi. 2Höfðu þeir boga að vopni og voru leiknir að slöngva steinum með hægri og vinstri hendi og að skjóta örvum af boga: Af frændum Sáls, af Benjamínítum: 3Ahíeser höfuðsmaður og Jóas, Hassemaasynir frá Gíbeu, Jesíel og Pelet Asmavetssynir, Beraka og Jehú frá Anatót, 4Jismaja frá Gíbeon, kappi meðal þeirra þrjátíu og foringi þeirra þrjátíu, Jeremía, Jehasíel, Jóhanan og Jósabad frá Gedera, 5Elúsaí, Jerímót, Bealja, Semarja og Sefatja frá Haríf, 6Elkana, Jissía, Asareel, Jóeser og Jasóbeam Kóraítar, 7Jóela og Sebadja Jeróhamssynir frá Gedór. 8Af Gaðítum gengu kappar miklir, hermenn, búnir til bardaga, er skjöld báru og spjót, í lið með Davíð í fjallvíginu í eyðimörkinni. Voru þeir ásýndum sem ljón og fráir sem skógargeitur á fjöllum. 9Var Eser höfðingi þeirra, annar var Óbadía, þriðji Elíab, 10fjórði Mismanna, fimmti Jeremía, 11sjötti Attaí, sjöundi Elíel, 12áttundi Jóhanan, níundi Elsabad, 13tíundi Jeremía, ellefti Makbannaí. 14Þessir voru af niðjum Gaðs, og voru þeir hershöfðingjar. Var hinn minnsti þeirra einn saman hundrað manna maki, en hinn mesti þúsund. 15Þessir voru þeir, er fóru yfir Jórdan í fyrsta mánuðinum, er hún flóði yfir alla bakka, og stökktu burt öllum dalbyggjum til austurs og vesturs. 16En nokkrir af Benjamíns- og Júdaniðjum komu til Davíðs í fjallvígið. 17Gekk Davíð þá út til þeirra, tók til máls og sagði við þá: ,,Ef þér komið til mín með friði til þess að veita mér lið, þá vil ég fúslega gjöra bandalag við yður, en ef þér komið til að svíkja mig í hendur óvinum mínum, þótt ég hafi ekkert illt aðhafst, þá sjái Guð feðra vorra það og hegni.`` 18Þá kom andi yfir Amasaí, höfðingja fyrir hinum þrjátíu, og mælti hann: ,,Þínir erum vér, Davíð, og með þér, þú Ísaísonur. Heill, heill sé þér, og heill liðsmönnum þínum, því að Guð þinn hjálpar þér.`` Tók þá Davíð við þeim og gjörði þá að foringjum fyrir sveit sinni. 19Af Manasse gengu í lið með Davíð, þá er hann fór með Filistum til bardaga við Sál _ þó liðsinntu þeir þeim ekki, því að höfðingjar Filista réðu ráðum sínum, sendu hann burt og sögðu: ,,Hann kynni að ganga í lið með Sál, herra sínum, og gæti það orðið vor bani`` _ 20þegar hann kom til Siklag, þá gengu í lið með honum af Manasse: Adna, Jósabad, Jedíael, Míkael, Jósabad, Elíhú og Silletaí, þúsundhöfðingjar Manasse. 21Veittu þessir Davíð lið gegn ræningjaflokkum, því að allir voru þeir kappar miklir, og urðu þeir foringjar í hernum. 22Því að dag frá degi komu menn til liðs við Davíð, uns herinn var mikill orðinn sem guðsher. 23Þetta er manntal á höfðingjum þeirra hertygjaðra manna, er komu til Davíðs í Hebron til þess að fá honum í hendur konungdóm Sáls eftir boði Drottins: 24Júdamenn, er skjöld báru og spjót, voru 6.800 herbúinna manna. 25Af Símeonsniðjum 7.100 hraustir hermenn. 26Af Levíniðjum: 4.600 27og auk þess Jójada, höfðingi Aronsættar, og 3.700 manns með honum. 28Og Sadók, ungur maður, hinn mesti kappi. Voru 22 herforingjar í ætt hans. 29Af Benjamínsniðjum, frændum Sáls, voru 3.000, en allt til þessa héldu flestir þeirra trúnað við ætt Sáls. 30Af Efraímsniðjum 20.800 nafnkunnra manna í ættum sínum. 31Af hálfri Manassekynkvísl 18.000 manna, er nafngreindir voru til þess að fara og taka Davíð til konungs. 32Af Íssakarsniðjum, er báru skyn á tíðir og tíma, svo að þeir vissu, hvað Ísrael skyldi hafast að, 200 höfðingjar, og lutu allir frændur þeirra boði þeirra. 33Af Sebúlon gengu í herinn 50.000 vígra manna, er höfðu alls konar hervopn, allir með einum huga til þess að hjálpa. 34Af Naftalí fóru þúsund höfðingjar og með þeim 37.000 manna, er skjöld báru og spjót. 35Af Dansniðjum 28.600 manna, er búnir voru til bardaga. 36Af Asser gengu í herinn 40.000 vígra manna. 37Af þeim hinumegin Jórdanar, af Rúbensniðjum, Gaðsniðjum og hálfri ættkvísl Manasse: 120.000 manna, með alls konar vopn til hernaðar. 38Allir þessir hermenn, er skipaðir voru í fylkingu, komu samhuga til Hebron til þess að taka Davíð til konungs yfir allan Ísrael. Voru og allir aðrir Ísraelsmenn samhuga í því að taka Davíð til konungs. 39Og þeir dvöldust þar þrjá daga hjá Davíð og neyttu matar og drykkjar, því að frændur þeirra höfðu búið þeim beina. 40Auk þess færðu þeir, er bjuggu í nágrenni við þá, allt að Íssakar, Sebúlon og Naftalí, vistir á ösnum, úlföldum, múlum og nautum, mjölmat, fíkjukökur, rúsínukökur, vín, olíu og naut og sauði í ríkum mæli, því að gleði var í Ísrael.
Copyright information for Icelandic