‏ Joshua 21

1Ætthöfðingjar levítanna gengu fyrir þá Eleasar prest, Jósúa Núnsson og ætthöfðingja kynkvísla Ísraelsmanna 2og töluðu þannig til þeirra í Síló í Kanaanlandi: ,,Drottinn bauð fyrir Móse að oss skyldi borgir gefa til bústaða, svo og beitilandið, er að þeim liggur, handa fénaði vorum.`` 3Þá gáfu Ísraelsmenn levítunum af óðulum sínum, eftir boði Drottins, þessar borgir og beitilönd þau, er að þeim lágu. 4Nú kom upp hlutur ætta Kahatíta, og fengu þá meðal levítanna synir Arons prests með hlutkesti þrettán borgir hjá Júda kynkvísl, Símeons kynkvísl og Benjamíns kynkvísl. 5Hinir synir Kahats fengu með hlutkesti tíu borgir frá ættum Efraíms kynkvíslar og frá Dans kynkvísl og frá hálfri kynkvísl Manasse. 6Synir Gersons fengu með hlutkesti þrettán borgir frá ættum Íssakars kynkvíslar, frá Assers kynkvísl, frá Naftalí kynkvísl og frá hálfri kynkvísl Manasse í Basan. 7Merarí synir fengu tólf borgir eftir ættum þeirra frá Rúbens kynkvísl, frá Gaðs kynkvísl og frá Sebúlons kynkvísl. 8Ísraelsmenn gáfu levítunum borgir þessar og beitilandið, er að þeim liggur, eftir hlutkesti, eins og Drottinn hafði boðið fyrir meðalgöngu Móse. 9Þeir gáfu af kynkvísl Júda sona og af kynkvísl Símeons sona þessar borgir, sem hér eru nafngreindar. 10Af ættum Kahatíta meðal Leví sona fengu Arons synir þær, af því að fyrsti hluturinn hlotnaðist þeim. 11Þeim gáfu þeir Kirjat-Arba, er átt hafði Arba, faðir Anaks, það er Hebron, á Júdafjöllum og beitilandið umhverfis hana. 12En akurland borgarinnar og þorpin, er að henni lágu, gáfu þeir Kaleb Jefúnnesyni til eignar. 13Sonum Arons prests gáfu þeir: Hebron, sem var griðastaður vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Líbna og beitilandið, er að henni lá, 14Jattír og beitilandið, er að henni lá, Estemóa og beitilandið, er að henni lá, 15Hólon og beitilandið, er að henni lá, Debír og beitilandið, er að henni lá, 16Asan og beitilandið, er að henni lá, Jútta og beitilandið, er að henni lá, og Bet Semes og beitilandið er að henni lá _ níu borgir frá þessum tveimur ættkvíslum. 17Af Benjamíns kynkvísl: Gíbeon og beitilandið, er að henni lá, Geba og beitilandið, er að henni lá, 18Anatót og beitilandið, er að henni lá, og Almón og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. 19Þannig hlutu synir Arons, prestarnir, þrettán borgir alls og beitilönd þau, er að þeim lágu. 20Að því er snertir ættir þeirra Kahats sona, er töldust til levítanna, hinna Kahats sonanna, þá fengu þær borgir þær, er þeim hlotnuðust frá Efraíms kynkvísl. 21Þeir gáfu þeim Síkem, sem var griðastaður vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, á Efraímfjöllum, Geser og beitilandið, er að henni lá, 22Kibsaím og beitilandið, er að henni lá, og Bet Hóron og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. 23Frá kynkvísl Dans: Elteke og beitilandið, er að henni lá, Gibbetón og beitilandið, er að henni lá, 24Ajalon og beitilandið, er að henni lá, og Gat Rimmon og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. 25Frá hálfri kynkvísl Manasse: Taanak og beitilandið, er að henni lá, og Jibleam og beitilandið, er að henni lá _ tvær borgir. 26Ættir hinna Kahats sonanna hlutu þannig tíu borgir alls og beitilönd þau, er að þeim lágu. 27Af ættum levítanna fengu Gersons synir frá hálfri kynkvísl Manasse: Gólan í Basan, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, og Beestera og beitilandið, er að henni lá _ tvær borgir. 28Frá Íssakars kynkvísl: Kisjón og beitilandið, er að henni lá, Daberat og beitilandið, er að henni lá, 29Jarmút og beitilandið, er að henni lá, og En-Ganním og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. 30Frá Assers kynkvísl: Míseal og beitilandið, er að henni lá, Abdón og beitilandið, er að henni lá, 31Helkat og beitilandið, er að henni lá, og Rehób og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. 32Frá Naftalí kynkvísl: Kedes í Galíleu, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Hammót Dór og beitilandið, er að henni lá, og Kartan og beitilandið er að henni lá _ þrjár borgir. 33Þannig hlutu Gersonítar eftir ættum þeirra, þrettán borgir alls og beitilönd þau, er að þeim lágu. 34Ættir Merarí sona, þeirra Leví sona, er enn voru eftir, fengu frá Sebúlons kynkvísl: Jokneam og beitilandið, er að henni lá, Karta og beitilandið, er að henni lá, 35Dimna og beitilandið, er að henni lá, og Nahalal og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. 36Frá Rúbens kynkvísl: Beser í eyðimörkinni, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Jahsa og beitilandið, er að henni lá, 37Kedemót og beitilandið, er að henni lá, og Mefaat og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. 38Frá Gaðs kynkvísl: Ramót í Gíleað, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Mahanaím og beitilandið, er að henni lá, 39Hesbon og beitilandið, er að henni lá, og Jaeser og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir alls. 40Þannig fengu Merarí synir, eftir ættum þeirra, þeir er enn voru eftir af ættum levítanna, í sitt hlutskipti tólf borgir alls. 41Borgir þær, er levítarnir fengu inni í eignarlöndum Ísraelsmanna, voru fjörutíu og átta alls, og beitilöndin, er að þeim lágu. 42Og allar þessar borgir voru hver um sig ein borg með beitilandi umhverfis. Var svo um allar þessar borgir. 43Drottinn gaf Ísrael allt landið, er hann hafði svarið að gefa feðrum þeirra, og þeir tóku það til eignar og settust þar að. 44Og Drottinn lét þá búa í friði á alla vegu, öldungis eins og hann hafði svarið feðrum þeirra. Enginn af öllum óvinum þeirra fékk staðist fyrir þeim, Drottinn gaf alla óvini þeirra í hendur þeim. 45Ekkert brást af öllum fyrirheitum þeim, er Drottinn hafði gefið húsi Ísraels. Þau rættust öll.
Copyright information for Icelandic