‏ Numbers 34

1Drottinn talaði við Móse og sagði: 2,,Bjóð þú Ísraelsmönnum og seg við þá: Þegar þér komið inn í Kanaanland, þá skal það vera landið, sem þér hljótið til eignar, Kanaanland til ystu ummerkja. 3Suðurhliðin skal vera: frá Síneyðimörk meðfram Edóm. Og austurendi suðurtakmarkanna skal vera suðurendi Dauðahafs. 4Þaðan skulu takmörkin liggja í boga fyrir sunnan Sporðdrekaskarð og ná yfir til Sín og endir þeirra vera fyrir sunnan Kades Barnea. Skulu þau liggja til Hasar Addar og ná yfir til Asmón. 5Frá Asmón skulu takmörkin liggja í boga til Egyptalandsár og alla leið til sjávar. 6Að vesturtakmörkum skuluð þér hafa hafið mikla; þetta skulu vera vesturtakmörkin. 7Norðurtakmörkin skulu vera þessi: Frá hafinu mikla skuluð þér taka stefnu á Hórfjall. 8Frá Hórfjalli skuluð þér taka stefnu þangað sem leið liggur til Hamat, og þaðan alla leið til Sedad. 9Skulu takmörkin ná til Sífrón og enda í Hasar Enan. Þetta skulu vera landamerki yðar að norðanverðu. 10Að austanverðu skuluð þér setja merkjalínuna frá Hasar Enan til Sefam. 11En frá Sefam skulu landamerkin liggja suður til Ribla, fyrir austan Aín. Þaðan skulu landamerkin liggja niður eftir og nema við fjallhrygginn fyrir austan Genesaretvatn. 12Og landamerkin skulu liggja niður með Jórdan og enda við Dauðahafið. Þessi skulu merki vera lands yðar hringinn í kring.`` 13Og Móse bauð Ísraelsmönnum og sagði: ,,Þetta er landið, sem þér skuluð fá til eignar með hlutkesti og Drottinn bauð að gefa níu ættkvíslunum og hálfri. 14Því að ættkvísl Rúbens sona, hver ætt fyrir sig, og ættkvísl Gaðs sona, hver ætt fyrir sig, og hálf ættkvísl Manasse hafa fengið sinn eignarhluta. 15Tvær ættkvíslirnar og hálf hafa fengið sinn eignarhluta hinumegin Jórdanar, gegnt Jeríkó, austanmegin.`` 16Drottinn talaði við Móse og sagði: 17,,Þessi eru nöfn þeirra manna, er skipta skulu landinu milli yðar: Eleasar prestur og Jósúa Núnsson 18og einn höfðingi af ættkvísl hverri til að skipta landinu, 19og þessi eru nöfn þeirra: af ættkvísl Júda: Kaleb Jefúnneson, 20af ættkvísl Símeons sona: Samúel Ammíhúdsson, 21af ættkvísl Benjamíns: Elídad Kislónsson, 22af ættkvísl Dans sona: Búkí Joglíson höfðingi, 23af sonum Jósefs: af ættkvísl Manasse sona: Hanníel Efóðsson höfðingi, 24af ættkvísl Efraíms sona: Kemúel Siftansson höfðingi; 25af ættkvísl Sebúlons sona: Elísafan Parnaksson höfðingi, 26af ættkvísl Íssakars sona: Paltíel Asansson höfðingi, 27af ættkvísl Assers sona: Akíhúð Selómíson höfðingi, 28af ættkvísl Naftalí sona: Pedahel Ammíhúdsson höfðingi.`` 29Þessir voru þeir, er Drottinn bauð að skipta skyldu landeignum milli Ísraelsmanna í Kanaanlandi.
Copyright information for Icelandic