Psalms 22
1Til söngstjórans. Lag: Hind morgunroðans. Davíðssálmur. 2Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg. 3,,Guð minn!`` hrópa ég um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en ég finn enga fró. 4Og samt ert þú Hinn heilagi, sá er ríkir uppi yfir lofsöngvum Ísraels. 5Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér, og þú hjálpaðir þeim, 6til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar. 7En ég er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum. 8Allir þeir er sjá mig gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið. 9,,Hann fól málefni sitt Drottni. Hann hjálpi honum! hann frelsi hann, því að hann hefir þóknun á honum!`` 10Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar. 11Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn. 12Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar. 13Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig. 14Þeir glenna upp ginið í móti mér sem bráðsólgið, öskrandi ljón. 15Mér er hellt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur; hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér; 16gómur minn er þurr sem brenndur leir, og tungan loðir föst í munni mér. Og í duft dauðans leggur þú mig. 17Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið. 18Ég get talið öll mín bein _ þeir horfa á og hafa mig að augnagamni, 19þeir skipta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn. 20En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar, 21frelsa líf mitt undan sverðinu og sál mína undan hundunum. 22Frelsa mig úr gini ljónsins, frá hornum vísundarins. Þú hefir bænheyrt mig! 23Ég vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðinum vil ég lofa þig! 24Þér sem óttist Drottin, lofið hann! Tignið hann, allir niðjar Jakobs! Dýrkið hann, allir niðjar Ísraels! 25Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi neyð hins hrjáða og eigi hulið auglit sitt fyrir honum, heldur heyrt, er hann hrópaði til hans. 26Frá þér kemur lofsöngur minn í stórum söfnuði, heit mín vil ég efna frammi fyrir þeim er óttast hann. 27Snauðir munu eta og verða mettir, þeir er leita Drottins munu lofa hann. Hjörtu yðar lifni við að eilífu. 28Endimörk jarðar munu minnast þess og hverfa aftur til Drottins og allar ættir þjóðanna falla fram fyrir augliti hans. 29Því að ríkið heyrir Drottni, og hann er drottnari yfir þjóðunum. 30Já, fyrir honum munu öll stórmenni jarðar falla fram, fyrir honum munu beygja sig allir þeir er hníga í duftið. En ég vil lifa honum, 31niðjar mínir munu þjóna honum. Komandi kynslóðum mun sagt verða frá Drottni, [ (Psalms 22:32) og lýð sem enn er ófæddur mun boðað réttlæti hans, að hann hefir framkvæmt það. ]
Copyright information for
Icelandic