Psalms 26
1Davíðssálmur. Lát mig ná rétti mínum, Drottinn, því að ég geng fram í grandvarleik og þér treysti ég óbifanlega. 2Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa hug minn og hjarta. 3Því að ég hefi elsku þína fyrir augum, og ég geng í sannleika þínum. 4Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við fláráða menn. 5Ég hata söfnuð illvirkjanna, sit eigi meðal óguðlegra. 6Ég þvæ hendur mínar í sakleysi og geng í kringum altari þitt, Drottinn, 7til þess að láta lofsönginn hljóma og segja frá öllum þínum dásemdarverkum. 8Drottinn, ég elska bústað húss þíns og staðinn þar sem dýrð þín býr. 9Hríf eigi sál mína burt með syndurum né líf mitt með morðingjum, 10þeim er hafa svívirðing í höndum sér og hægri höndina fulla af mútugjöfum. 11En ég geng fram í grandvarleik, frelsa mig og líkna mér. 12Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil ég lofa Drottin.
Copyright information for
Icelandic