‏ Psalms 39

1Til söngstjórans, eftir Jedútún. Davíðssálmur. 2Ég sagði: ,,Ég vil gefa gætur að vegum mínum, að ég drýgi eigi synd með tungunni, ég vil leggja haft á munn minn, meðan hinn illgjarni er í nánd við mig.`` 3Ég var hljóður og þagði, en kvöl mín ýfðist. 4Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp, ég sagði: 5,,Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum, lát mig sjá, hversu skammær ég er. 6Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og ævi mín er sem ekkert fyrir þér. Andgustur einn eru allir menn. [Sela] 7Sem tómur skuggi gengur maðurinn um, gjörir háreysti um hégómann einan, hann safnar í hrúgur, en veit eigi hver þær hlýtur.`` 8Hvers vona ég þá, Drottinn? Von mín er öll á þér. 9Frelsa mig frá öllum syndum mínum, lát mig eigi verða heimskingjum að spotti. 10Ég þegi, ég opna eigi munninn, því að þú hefir talað. 11Lát plágu þína víkja frá mér, ég verð að engu fyrir krafti handar þinnar. 12Þá er þú beitir hirtingu við manninn fyrir misgjörð hans, lætur þú yndisleik hans eyðast, sem mölur væri. Andgustur einn eru allir menn. [Sela] 13Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að ég er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir. [ (Psalms 39:14) Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en ég fer burt og er eigi til framar. ]
Copyright information for Icelandic